Málaðu þig eins og JLO

Jennifer Lopez er þekkt fyrir að vera alltaf fallega förðuð.
Jennifer Lopez er þekkt fyrir að vera alltaf fallega förðuð.

Langar þig að vera gordjöss um helgina en veist ekki alveg hvernig þú átt að fara að því? Ef þú fílar söngkonuna Jennifer Lopez þá ætti förðunarlínan sem hún gerði í samstarfi við Inglot Cosmetics að vera eitthvað fyrir þig. 

Jennifer Lopez hefur veitt kvenpeningi heimsins mikinn innblástur en nú leyfir hún okkur hinum að vera með línunni frá Inglot. Í línunni valdi Lopez sína uppáhaldsliti þegar kemur að förðunarvörum. Í línunni er maskari, varalitur, gerviaugnhár, kinnalitur, augnskuggar og kinnalitur til að fá bronsáferð á húðina. 

Hún vann náið með Inglot-teyminu við að hanna hvert einasta smáatriði, svo sem litaúrvalið, auglýsingaherferðina og það nafnaval sem vörurnar bera, en nöfnin eiga innblástur að rekja í feril Jennifer, t.d. „Boogie Down Bronze“ og „Livin’ The Highlight.“

Þessi lína er fyrir konur sem eru alltaf á ferðinni eins og hún sjálf. Línan fæst í Inglot í Kringlunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál