Elska typpaandlitsmeðferð

Sandra Bullock og Cate Blanchett fara í sérstaka andlitsmeðferð.
Sandra Bullock og Cate Blanchett fara í sérstaka andlitsmeðferð. Samsett mynd

Stjörnurnar út í heimi eru duglegar að prófa sig áfram þegar kemur að fallegri húð. Cate Blanchett greindi frá því fyrr í vetur að hún og Sandra Bullock hefðu farið í ansi sérstaka andlitsmeðferð, en þær kalla hana typpaandlitssnyrtingu. 

Bullock fór ofan í saumana á aðferðinni í spjallþætti Ellenar DeGeneres á dögunum er fram kemur á vef Daily Mail. „Ég kalla þetta typpaandlitssnyrtingu,“ sagði Bullock. „Og þegar þú sérð hversu góð hún er fyrir andlit þitt, þá muntu hlaupa til snyrtifræðingsins þín og segja: „gefðu mér typpi“.“

Typpi koma þó frekar óbeint við sögu í snyrtingunni en efni sem sett er á andlit fólks í snyrtingunni er unnið úr forhúð nýfæddra kóreskra drengja. Þessi undarlega aðferð er ekki ókeypis og er sögð kosta 650 dollara eða um 68 þúsund íslenskar krónur. 

Bullock er hrifin af aðferðinni og flykkjast stjörnurnar á stofu snyrtifræðingsins Georgia Louise. Jennifer Aniston, Jennifer Lawrence, Gwyneth Paltrow, Anna Wintour og fleiri stjörnur er sagðar aðdáendur ef marka má heimasíðu Louise.

Sandra Bullock.
Sandra Bullock. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál