Billboard-tónlistarverðlaunin voru veitt um helgina í skugga konunglega brúðkaupsins. Á meðan fágun og elegans ríkti í Windsor um helgina var allt annað uppi á teningnum í Las Vegas þar sem verðlaunin voru veitt.
Kjóllinn sem söngkonan Christina Aguilera klæddist vakti til að mynda mikla athygli. Kjóllinn er frá 16 Arlington og á meðan stílisti söngkonunnar sagði í viðtali í Vogue að kjóllinn ætti að minna á hin klassísku valdamiklu jakkaföt voru margir sem settu spurningarmerki við kjólinn.
Stílistinn sagði að þeim hafi fundist rétt að bæta slóðanum við kjólinn. Eins og sést á mynd af Aguilera átti hún þó í vandræðum með slóðann og þurfti hún manneskju með sér svo kjóllinn liti sem best út á myndum.