130 þúsund króna bolaskyrta gerir allt brjálað

Flíkin kemur sér eflaust vel í íslenskri veðráttu enda veit …
Flíkin kemur sér eflaust vel í íslenskri veðráttu enda veit maður aldrei hvenær ský dregur fyrir sólu og stuttermabolurinn ekki lengur málið. skjáskot/Balenciaga

Tískuhúsið Balenciaga var ekki að grínast þegar þeir fóru í samstarf við Crocks og þeir virðast heldur ekki vera að grínast með nýjan suttermabol fyrir herra sem hefur vakið mikla athygli.

Bolurinn kallast T-SHIRT SHIRT eða stuttermabolaskyrta en það er nákvæmlega það sem hann er. Segja má að fólk fái tvær flíkur í einu þegar það kaupir bolinn þar sem skyrta er föst framan á annars venjulegum bol og því hefur flíkin tvo notkunarmöguleika. 

Skyrtubolurinn er þó ekki ókeypis en hann er fáanlegur á heimasíðu Balenciaga fyrir 935 pund eða rúmar 130 þúsund íslenskar krónur. 

Skyrta og stuttermabolur.
Skyrta og stuttermabolur. skjáskot/Balenciaga

Ekki eru allir hrifnir af þessari hönnun og ákvað einn Twitter-notandi að búa sér sjálfur til skyrtubol með límbandi og tók hann fram að það hafi ekki kostað hann mikið. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál