Spókaði sig um í ódýrum kjól úr Zöru

Katrín hertogaynja er ekki alltaf í rándýrri merkjavöru.
Katrín hertogaynja er ekki alltaf í rándýrri merkjavöru. mbl.is/AFP

Á laugardaginn veifaði Katrín hertogaynja mannfjöldanum á svölum Buckingham-hallar í rándýrum fatnaði frá Alexander McQueen. Á sunnudaginn var hún hins vegar í kjól á öllu viðráðanlegra verði. 

Katrín var í hversdagslegum sumarkjól úr Zöru á pólóleik með fjölskyldu sinni á sunnudaginn en samkvæmt Evening Standard kostaði kjóllinn aðeins 39,99 pund í Bretlandi eða um 5.700 íslenskar krónur. Einnig kemur fram að kjóllinn sé uppseldur en það er ekki í fyrsta skipti sem það gerist. 

Í lok maí rauk út annar ódýr sumarkjóll úr Zöru eftir að hertogaynjan hafði sést í honum. Katrín virðist því hafa keypt sér sumardressin hjá spænsku verslunarkeðjunni. Blátt og ódýrt er málið í fæðingarorlofinu hjá Katrínu í sumar. 

Katrín klæddist þessum kjól úr Zöru á sunnudaginn.
Katrín klæddist þessum kjól úr Zöru á sunnudaginn. ljósmynd/Zara
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál