Sumarveisla í boði McCartney í Mílanó

Breski fatahönnuðurinn Stella McCartney sýndi sumarlínu tískuhúsins á tískuvikunni í …
Breski fatahönnuðurinn Stella McCartney sýndi sumarlínu tískuhúsins á tískuvikunni í Mílanó. Blúnda, bleikur litur og falleg sníðagerð einkenndi línuna. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Stella McCartney hélt fallega garðveislu í Mílanó til að sýna sumarlínu tískuhússins fyrir árið 2019. Garðveislan var haldin rétt við kirkjuna úr „Da Vinci Code“. Katy Perry, Chris Martin, Leonardo DiCaprio og Emma Roberts mættu í veisluna og skoðuðu falleg línuna sem einkenndist af framúrstefnulegum skóm, björtum litum og mynstrum.

Samkvæmt Hollywood Reporter vildi McCartney búa til skemmtilega upplifun með garðveislunni og sýna tískulínu sem leggur áherslu á fallega sníðagerð, herralegan klæðskurð á bæði kynin, prentverk á efni, gróf efni í bland við silki og margt fleira sem einkennir hönnun McCartney.

Stella McCartney stillir sér upp fyrir tískusýningu á sumarlínu sinni …
Stella McCartney stillir sér upp fyrir tískusýningu á sumarlínu sinni fyrir árið 2019 í Mílanó. AFP

Línan er sú fyrsta sem hún sýnir eftir að hafa náð aftur ráðandi hlut í fyrirtækinu af stórveldinu Kering núna í mars.

Bresku áhrifin frá „Savile Row“,þangað sem karlmenn fara að láta sérsauma á sig fatnað í London voru einkennandi fyrir herrafatnaðinn. Hönnuðinum þótti takast vel til að blanda því við sportlegt útlit. McCartney hefur 13 ára reynslu af því að starfa með Adidas.

Línan var almenningi sýnileg á Instagram reikningi Stella McCartney. Tískuhúsið er með 5 milljónir fylgjenda á Instagram sem fengu nýjustu línuna í beint í æð áður en fjölmiðlar höfðu tækifæri á að sýna hana. 

Nýtt og ferskt útlit í garðveislu McCartney fyrir sumarið 2019.
Nýtt og ferskt útlit í garðveislu McCartney fyrir sumarið 2019. Ljósmynd/skjáskot Instagram
Bleikur litur verður áberandi í tískulínu McCartney næsta sumar.
Bleikur litur verður áberandi í tískulínu McCartney næsta sumar. Ljósmynd/skjáskot Instagram
Klæðskurður sem minnir á Savile Row, í bland við sportlegan …
Klæðskurður sem minnir á Savile Row, í bland við sportlegan fatnað. Ljósmynd/skjáskot Instagram
Bútasaumur, herralegt snið og ólík efni virka þegar McCartney setur …
Bútasaumur, herralegt snið og ólík efni virka þegar McCartney setur saman. Ljósmynd/skjáskot Instagram
Af Instagram síðu Stella McCartney mátti sjá fallega samsetningu fatnaðar …
Af Instagram síðu Stella McCartney mátti sjá fallega samsetningu fatnaðar á fyrirsætum í Mílanó. Ljósmynd/skjáskot Instagram
Nokkrir hlutir úr sumarlínunni voru sérstaklega merktir þeim sem eru …
Nokkrir hlutir úr sumarlínunni voru sérstaklega merktir þeim sem eru Vegan. En allar vinnsluaðferðir, efnaval og umgjörð í tengslum við framleiðslu þess fatnaðar er rekjanlegur í uppruna flíkarinnar. Eins er ekki notast við dýra afurðir. Ljósmynd/skjáskot Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál