Í gallabuxnaefni frá toppi til táar

Victoria Beckham er ekki hrædd við gallabuxnaefnið.
Victoria Beckham er ekki hrædd við gallabuxnaefnið. AFP

Að klæðast gallabuxnaefni við meira gallabuxnaefni (e. denim on denim) er eitthvað sem kemur ekki alltaf vel út. Fatahönnuðurinn og fyrrverandi kryddpían Victoria Beckham átti þó ekki í stökustu vandræðum með að láta tískufyrirbrigðið ganga upp. 

Frú Beckham sást skarta flottri gallabuxnadragt úr dökku gallbuxnaefni á dögunum. Gallabuxurnar sjálfar voru níðþröngar, síðar og örlítið útvíðar og þannig þær náðu vel yfir hælana sem hún var í. Dressið var að sjálfsögðu hennar eigin hönnun en Beckham er dugleg að auglýsa fyrir sjálfa sig. 

Victoria Beckham out in Paris

A post shared by LASE 💕 (@lifeandsomethingelse) on Jun 27, 2018 at 6:21am PDT

Buxnadragtir hafa verið vinsælar í vor og eru greinilega fremst í fataskápnum hjá Beckham þessa dagana. Nokkrum dögum eftir að hún sást í gallabuxnadragtinni birti hún mynd af sér í svartri buxnadragt. Reyndar var móðir hennar einnig klædd í svarta buxnadragt. 

Viktoria Beckham ásamt móður sinni, báðar í svörtum buxnadrögtum.
Viktoria Beckham ásamt móður sinni, báðar í svörtum buxnadrögtum. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál