Glæsilegar ömmur á Instagram

Maye Musk er sjötug og starfar sem módel. Hún er …
Maye Musk er sjötug og starfar sem módel. Hún er með glæsilegt Instagram og lifir spennandi lífi. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Smartland mælir með ömmunum á Instagram. Konum yfir sextugu sem sýna það og sanna að aldur er afstæður. Það er hægt að skemmta sér á öllum aldri.

Í Independent er fjallað um þessar flottu konur sem segja að unga kynslóðin fylgi þeim af því að hún sé án fordóma og vilji vita hverju hún eigi von á með aldrinum. Konur komnar yfir sextugt sýna samfélagslega ábyrgð að mati margra með því að sýna hvernig lífið er á þessum aldri. Þær virðast skemmta sér vel og hafa ýmislegt áhugavert fram að færa sem yngri kynslóðir geta lært af. 

Hér eru nokkrar áhugaverðar konur sem gaman er að fylgjast með:

Lyn Slater varð óvænt vinsæl á Instagram. Hún er prófessor við Fordham-háskóla í New York. Hún er 64 ára og vekur athygli hvar sem hún kemur fyrir fallegan stíl og flottan klæðnað.

Jenny Kee sem er 71 árs og lifir lífinu eins og jafnaldrar hennar gera, með hamingju og skemmtun að leiðarljósi, segir: „Við erum ekki gamlar konur, með aflitað bláleitt hár á elliheimilum á mínum aldri.“ 

Kee starfar sem listakona og sérhæfir síg í prjónavörum. „Þegar við vorum ungar vorum við að brenna brjóstahaldara okkar og berjast fyrir frjálsri ást. Af hverju ættum við ekki að vera að gera eitthvað spennandi núna?“ er haft eftir henni í Independent.

My Paloma restin on our bushwalk @paloloma

A post shared by Jenny Kee (@jennykeeoz) on Mar 8, 2018 at 9:17pm PST

Dorrie Jacobson er 83 ára fyrrum Playboy-kanína sem virðist engu hafa gleymt þrátt fyrir aldur. Hún segir ítrekað í færslunum sínum að aldur sé afstæður. Konur eigi að klæða sig eins og þeim líður. „Þegar þú hættir að hafa gaman í lífinu, kemur stundin þegar þú verður gömul.“

Baddie Winkle er 89 ára og er með litríkar færslur á Instagram þar sem hún þykir framúrstefnuleg með eindæmum. Hún klæðist litríkum fatnaði og er með margar milljónir fylgjenda. Fyrirtæki á borð við Got2B, Smirnoff og Sephora styrkja tískugyðjuna sem sýnir að aldur er afstæður. Það er hægt að hafa gaman á öllum aldri.

Hin 69 ára gamla Lili Hayes sýnir inn í veruleika ömmunnar af gyðingaættum, sem rífst í símann reglulega, dansar við töff tónlist og ýmislegt fleira.

Mom getting ready for Shabbat 😭😭

A post shared by Lili Hayes (@lili_hayes) on May 11, 2018 at 12:28pm PDT

Maye Musk er einstaklega fögur og hefur slegið í gegn sem fyrirsæta og hafa myndir af henni birst í Harper´s Bazaar. Musk er sjötug og lítur einstaklega vel út.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál