Rachel Zoe hefur verið í sviðsljósinu í langan tíma. Fyrst sem stílisti stjarnanna og síðan sem fatahönnuður með eigin framleiðslu. Fatnaðurinn sem hún hannar sjálf er í anda þess tímabil sem hún er hvað mest hrifin af sem er áttundi áratugur síðustu aldar.
Hún er mikið fyrir stór sólgleraugu, ljósa kjóla og útvíðar buxur. Hún á mikið af gömlum flíkum frá Halston og má segja að Rachel Zoe-línan sé nútímaleg útgáfa af Halston þegar vörumerkið var upp á sitt besta. Hægt er að kaupa kjólana hennar á heimasíðu tískuhússins Rachel Zoe. Eins mælir Smartland með Instagrammi vörumerkisins til að fá skemmtilegar hugmyndir að stíliseringu og samsetningu á fatnaði og fylgihlutum.