Af hverju prófarðu ekki Lipton-stílinn?

Peggy Lipton er með stíl sem hefur verið viðeigandi í …
Peggy Lipton er með stíl sem hefur verið viðeigandi í marga áratugi. Svo klassísk er hún. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Peggy Lipton átti hug og hjörtu heimsins á áttunda áratug síðustu aldar. Hún var með einfaldan fallegan stíl, sítt glansandi hár og einkenni hennar voru buxur, sailor-jakki og lítill farði. Við spyrjum að þessu sinni: Af hverju klæðir þú þig ekki í anda Peggy Lipton?

Lipton fór ung að heiman þar sem hana langaði að verða eitthvað meira í lífinu. Hún ritaði seinna um lífið sitt bók þar sem hún rekur áföll í æsku til þess flótta sem hún var á fyrri hluta lífsins. 

Peggy Lipton og Quincy Jones.
Peggy Lipton og Quincy Jones. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Leikkonan sem átti tvær persónur, eina opinbera og aðra fyrir sig, kom mörgum á óvart með ævisögu sinni. Hins vegar eru margir á því að fleiri aðilar á sviði kvimynda og lista eiga svipaða sögu að segja og hún. Ungar konur sem leita sín í formi lista og menningar. Peggy Lipton giftist Quincy Jones og eignaðist með honum tvær dætur. Önnur dóttir þeirra er leikkonan Rashida Jones sem er sjálf með einstakan stíl sem hún hefur án efa tileinkað sér frá móður sinni. Hjónabandið varði ekki lengi. Hún hafði öðrum hlutverkum að gegna. Meðal annars því að halda áfram með leiklistarferilinn sinn og það mikilvæga verkefni að finna sig.

Þegar kemur að tískunni þykir hún hafa verið öðru fremur klassísk í klæðaburði. Útlit hennar, sama á hvaða áratug síðustu aldar borið er niður, á vel við í dag. Það er auðvelt að finna fatnað og fylgihluti í hennar anda í dag. Einfalt útlit í bland við fallega húð og sítt hárið gerir stíl hennar áhugaverðan.

Peggy Lipton í Mod Squad sem var einn vinsælasti sjónvarpsþáttur …
Peggy Lipton í Mod Squad sem var einn vinsælasti sjónvarpsþáttur á áttunda áratug síðustu aldar.
Gleraugu á borð við þessi sem Lipton er með á …
Gleraugu á borð við þessi sem Lipton er með á áttunda áratugnum hafa verið vinsæl að undanförnu. Ljósmynd/skjáskot Instagram
Einfalt útlit og einstaklega fallegir litir í bland við fágað …
Einfalt útlit og einstaklega fallegir litir í bland við fágað hárið og fallega húðina er einkenni Lipton. Ljósmynd/skjáskot Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál