Nærfataframleiðandinn Arie, sem hefur verið leiðandi umræðunni um líkamsvirðingu síðustu ár, ákvað að ráða 57 venjulegar konur fyrir nýjustu auglýsingaherferð sína. Auglýsingaherferðin ber nafnið #AerieReal og miðar að því sýna venjulegar konur af öllum stærðum og gerðum í nærfötunum frá merkinu. Ekki er notast við myndvinnsluforrit í herferðinni.
Þar má sjá konur af mismunandi kynþáttum, fatlaðar konur, konur með ör og konur með húðflúr.