Hvítt er litur sumarsins. Það getur verið smávegis átak að koma sér í ljósa liti en um leið og maður er kominn upp á lagið þá verður ekki aftur snúið.
Eftirfarandi myndir sýna frábærar útfærslur af hvítu. Flestir eiga fulla fataskápa af ljósum fatnaði sem þurfa að fara í notkun sem fyrst. Aðrir þurfa að finna sér nokkrar góðar flíkur í ljósu. Smartland hvetur landsmenn til að mála umhverfið í hvítu um þessar mundir. Þó ekki sé nema að fara í hvítan bol undir svörtu dragtina.