Í tveimur bleikum dressum í afmælisveislunni

Kloé, Kourtney, Kylie, Kim og Kendall.
Kloé, Kourtney, Kylie, Kim og Kendall. skjáskot/Instagram/kyliejenner

Raunveruleikaþáttastjarnan Kylie Jenner varð 21 árs á föstudaginn. Það var öllu tjaldað til hjá þeim systrum og klæddist Kylie tveimur mismunandi dressum um kvöldið. Þær systur Kylie, Kendall, Kourtney, Khloé og Kim fögnuðu á skemmtistað í Los Angeles ásamt móður sinni Kris. Kylie birti mynd af þeim mæðgum saman og skrifaði að þær væru allar 21 árs núna. Kylie er yngst sex systkina og því síðust til að verða 21 árs. Eins og margir vita mega Bandaríkjamenn ekki drekka fyrr en þeir eru orðnir 21 árs og því virðist áfengi hafa verið þema kvöldsins. 

BIRTHDAY BEHAVIOR! WERE ALL TURNING 21!!

A post shared by Kylie (@kyliejenner) on Aug 9, 2018 at 10:48pm PDT

Kylie byrjaði kvöldið í bleikum kjól en skipti svo yfir í bleikan samfesting með Swarovski-steinum. Samfestingurinn var sérhannaður fyrir Kylie af tískuhönnuðinum LaBourjoisie. Hún litaði á sér hárið í tilefni kvöldsins og er hún nú með ljósa lokka.

Fyrri kjóllinn sem Kylie klæddist í afmælinu sínu.
Fyrri kjóllinn sem Kylie klæddist í afmælinu sínu. skjáskot/Instagram/kyliejenner
Bleiki Swarovski-samfestingurinn og ljósu lokkarnir fóru vel saman.
Bleiki Swarovski-samfestingurinn og ljósu lokkarnir fóru vel saman. skjáskot/Instagram/kyliejenner

Eins og Kylie á kyn til var afmælisveislan ekkert slor og lét hún gera barbí-eftirhermu af sér. Barbídúkkuútgáfan er klædd eins fötum og Kylie var í um kvöldið.  

goodnight

A post shared by Kylie (@kyliejenner) on Aug 10, 2018 at 2:45am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál