Raunveruleikaþáttastjarnan Khloé Kardashian situr ekki aðgerðalaus þrátt fyrir að hafa eignast barn í apríl. Hún hefur áður hannað gallabuxur undir merkinu „Good American“ og nú er íþróttafatalína væntanleg frá henni.
Auk þess að koma fram í raunveruleikaþættinum Keeping Up With The Kardashians er hún með sinn eigin raunveruleikaþátt, Revenge Body, þar sem hún hjálpar fólki að komast í gott form til að hefna sín.
Fötin í íþróttalínunni eru öll svört og sjúklega flott, enda Khloé með góðan smekk.