„Crazy Rich“-kjólar í Hollywood

Leikkonan Constance Lau á frumsýningu kvikmyndarinnar í Hollywood. Hún skartar …
Leikkonan Constance Lau á frumsýningu kvikmyndarinnar í Hollywood. Hún skartar æðislegum varalit og framúrstefnulegu hári. AFP

Frumsýning kvikmyndarinnar „Crazy Rich Asians“ var full af „Crazy Rich“-kjólum í Hollywood á dögunum. Kvikmyndin verður frumsýnd í Sambíó föstudaginn 24. ágúst næstkomandi og er beðið eftir henni með spenningi. 

Kvikmyndin er byggð á samnefndri metsölubók sem kom út árið 2013 og segir frá Rachel Chu sem er bandarískur hagfræðiprófessor af kínverskum ættum, en kærasti hennar Nick býður henni með sér til Singapore í brúðkaup besta vinar síns. Rachel kemst fljótt að því að fjölskylda kærastans sé ein ríkasta fjölskyldan í Singapore. Tengdamóðirin er ekkert lamb að leika sér við og söguþráður myndarinnar tekur óvæntan snúning. 

Smartland er á því að kjólarnir og jakkafötin á frumsýningu kvikmyndarinnar séu í sérflokki. 

Constance Wu glæsileg að vanda í kjól frá Ralph & …
Constance Wu glæsileg að vanda í kjól frá Ralph & Russo. AFP
Constance Lau í kjól frá tískuhúsi í Singapore.
Constance Lau í kjól frá tískuhúsi í Singapore. AFP
Awkwafina í kjól frá Reem Acra.
Awkwafina í kjól frá Reem Acra. AFP
Gemma Chan í kjól frá Oscar de la Renta.
Gemma Chan í kjól frá Oscar de la Renta. AFP
Kris Aquino í kjól frá Michael Leyva.
Kris Aquino í kjól frá Michael Leyva. Alberto E. Rodriguez
Victoria Loke í kjól frá Preen.
Victoria Loke í kjól frá Preen. JEAN-BAPTISTE LACROIX
Yara Shahidi í kjól frá Prada.
Yara Shahidi í kjól frá Prada. AFP
Chloe Bennet í kjól frá Tadashi Shoji.
Chloe Bennet í kjól frá Tadashi Shoji. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál