Skreyttar fjöðrum í Feneyjum

Cate Blanchett og Lady Gaga voru í stíl í Feneyjum.
Cate Blanchett og Lady Gaga voru í stíl í Feneyjum. Samsett mynd

Kvikmyndahátíðin í Feneyjum er í fullum gangi og keppast stjörnurnar um að klæðast sínu fínasta pússi á rauða dreglinum. Ef eitthvað er að marka þær Cate Blanchett og Lady Gaga eru fjaðrir það allra fínasta þessa mánuðina. 

Leikkonan Cate Blanchett mætti á frumsýninguna myndarinnar A Star Is Born í svörtum síðkjól frá Giorgio Armani Privé en kjóllinn var skreyttur hvítum fjöðrum. 

Cate Blanchett í Giorgio Armani Privé.
Cate Blanchett í Giorgio Armani Privé. AFP

Söngkonan Lady Gaga, sem fer með annað aðalhlutverk myndarinnar, mætti í kjól frá Valentino sem einnig var skreyttur fjöðrum, kjóll Gaga var hins vegar bleikur og töluvert fyrirferðarmeiri en kjóll Blanchett. Harper's Baazar rifjaði upp að fyrirsætan unga Kaia Gerber, dóttir Cindy Crawford, hefði klæðst kjólnum á hátískupallinum þegar merkið sýndi hátískulínu sína í sumar.

Lady Gaga í Valentino.
Lady Gaga í Valentino. AFP



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál