Gabbana fannst brúðarkjóllinn glataður

Chiara Ferragni gifti sig um helgina.
Chiara Ferragni gifti sig um helgina. AFP

Ítalskar jafnt sem íslenskar stjörnur hafa gift sig á Ítalíu að undanförnu en ítalski fatahönnuðurinn Stefano Gabbana var ekki hrifinn af sérsaumaða brúðarkjólnum frá Dior sem ítalska stjarnan Chiara Ferragni klæddist þegar hún giftist ítalska söngvaranum Fedez Leonardo um helgina

People greinir frá athugasemd sem Gabbana, annar af stofnendum ítalska tískhússins Dolce & Gabbana, skrifaði við athugasemd við mynd Harper's Bazaar af Ferragni í kjólnum. „Ómerkilegur“ skrifaði Gabbana um kjólinn á Instagram og fékk í kjölfarið mikla gagnrýni. 

Stefano Gabbana er hér ásamt Domenico Dolce.
Stefano Gabbana er hér ásamt Domenico Dolce. mbl.is/STEFANO RELLANDINI

Flestum þótti Ferragni stórglæsileg í brúðarkjólnum en hún klæddist tveimur öðrum sérsaumuðum kjólum frá Dior á brúðkaupsdaginn. Hún klæddist bæði síðum og stuttum tjullkjólum í veislunni en fram kemur hjá Dior að útsaumurinn á síða kjólnum tákni rómantíska og þýðingarmikla atburði í lífi hjónanna. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál