Með stjörnunum á rauða dreglinum

Tilda Swinton, Halla Þórðardóttir og Chloe Grace Moretz voru viðstaddar …
Tilda Swinton, Halla Þórðardóttir og Chloe Grace Moretz voru viðstaddar frumsýningu Suspiria. Samsett mynd

Kvikmyndin Suspiria var ein af þeim myndum sem frumsýndar voru á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum en hátíðinni lauk um helgina. Íslenski dansarinn Halla Þórðardóttir fer með hlutverk í myndinni og var mætt til Feneyja í byrjun september eins og margar af helstu kvikmyndastjörnum heims en í myndinni leikur Halla meðal annars á móti Tildu Swinton. 

Halla var glæsileg á rauða dreglinum og var að sjálfsögðu í íslenskri hönnun. „Ég var í toppi frá Anítu Hirlekar,“ segir Halla í samtali við Smartland um fötin sem hún klæddist í Feneyjum. 

Luca Guadagnino leikstýrði myndinni en hann hlaut tilnefningu til Óskarsverðlaunanna í ár fyrir Call Me by Your Name. Dakota Johnson og Chloe Grace Moretz eru meðal þeirra stjarna sem fara hlutverk í myndinni auk leikkonunnar og tískugyðjunnar Swinton. 

Halla ásamt samstarfsfólki úr myndinni Suspiria í Feneyjum.
Halla ásamt samstarfsfólki úr myndinni Suspiria í Feneyjum.
Leikkonan Dakota Johnson var klædd í rautt eins og og …
Leikkonan Dakota Johnson var klædd í rautt eins og og leikkonan og tískugyðjan Tilda Swinton á frumsýningu Suspiria á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. AFP
Mia Goth á frumsýningu Suspira en leikkonan fer með hlutverk …
Mia Goth á frumsýningu Suspira en leikkonan fer með hlutverk í myndinni. AFP
Ungstirnið Chloe Grace Moretz fer með hlutverk í Suspiria og …
Ungstirnið Chloe Grace Moretz fer með hlutverk í Suspiria og var skemmtilega klædd á frumsýningunni. AFP
Leikkonan Cate Blanchett mætti á frumsýningu Suspiria á kvikmyndahátíðinni í …
Leikkonan Cate Blanchett mætti á frumsýningu Suspiria á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. AFP

Fleiri myndir voru frumsýndar á hátíðinni og voru allir í sínu fínasta pússi. 

Natalie Portman.
Natalie Portman. AFP
Tilda Swinton.
Tilda Swinton. AFP
Naomi Watts.
Naomi Watts. AFP
Lady Gaga.
Lady Gaga. AFP
Clemence Poesy.
Clemence Poesy. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál