Mamma Meghan flottari?

Doria Ragland, Meghan og Harry mættu í sínu fínasta pússi.
Doria Ragland, Meghan og Harry mættu í sínu fínasta pússi. AFP

Harry Bretaprins og tengdamóðir hans, Doria Ragland, mættu með Meghan hertogaynju þegar útgáfu góðgerðaruppskriftabókar sem Meghan vinnur að var fagnað. Vanalega er það Meghan sem stelur allri athygli en nú var það móðir hennar. 

Meghan var klædd í nýja bláa kápu frá Smythe sem kostar 1.195 Bandaríkjadali eða rúmlega 130 þúsund íslenskra króna. Undir kápunni var hún svo í hlýralausum rúllukraga og plíseruðu pilsi sem hún hefur áður sést í. 

Meghan var flott í rúllukraga.
Meghan var flott í rúllukraga. AFP

Móðir hertogaynjunnar var glæsileg að vanda en hún flaug til Bretlands á dögunum. Hún toppaði fallegu ljósu peysuna og buxurnar með fallegu sjali. Einhverjir vilja jafnvel meina að hún hafi stolið senunni. 

Doria Ragland í ljósu en Meghan í dökku.
Doria Ragland í ljósu en Meghan í dökku. AFP
Doria Ragland, Meghan og Harry.
Doria Ragland, Meghan og Harry. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál