Sumt fólk eyðir mörgum árum í að skammast sín fyrir bólur og þegar þær loksins hverfa skammast fólk sín fyrir örin eftir bólurnar. Það er þó algjör óþarfi að skammast sín fyrir þetta tvennt rétt eins og hvað annað sem passar ekki inn í hina fullkomnu líkamsímynd.
Aukin umræða um náttúrulega fegurð og sjálfsást hefur aukið sjálfstraust fólks til þess að sýna sitt rétta andlit. Á Instagram er hægt að finna fjölmarga notendur sem deila sinni baráttu við bóludjöfulinn. Sumir sýna hvernig húðheilsa þeirra er hverju sinni á meðan aðrir hafa lært að elska húð sína.