Endalausir möguleikar með einni pallettu

Born To Run nefnist nýjasta augnskuggapalletta Urban Decay og inniheldur …
Born To Run nefnist nýjasta augnskuggapalletta Urban Decay og inniheldur 21 augnskugga.

Nýjasta augnskuggapalletta Urban Decay nefnist Born To Run og fór hún eins og stormsveipur um förðunarheiminn en hún er loksins komin til Íslands.

Born To Run-augnskuggapallettan ásamt þeim augnblýöntum og varalitum sem í …
Born To Run-augnskuggapallettan ásamt þeim augnblýöntum og varalitum sem í boði eru nú í takmörkuðu upplagi.

Pallettan inniheldur hvorki meira né minna en 21 augnskugga með mismunandi áferðum, frá möttum yfir í metal. Það sem kom mér hvað mest á óvart er þó verðið á pallettunni en hún kostar 6.699 kr., sem verður að teljast hagstætt fyrir 21 hágæðaaugnskugga. Born To Run-pallettan verður hluti af varanlegu framboði Urban Decay en þó eru þrír augnblýantar og þrír varalitir sem koma í takmörkuðu upplagi.

Förðun með djúpum tónum sem eru sérlega fallegir fyrir haustið.
Förðun með djúpum tónum sem eru sérlega fallegir fyrir haustið.
Einn litur yfir allt augnlokið er stundum það eina sem …
Einn litur yfir allt augnlokið er stundum það eina sem þarf til að skapa flotta förðun.

Þema pallettunnar er ferðalög og á umbúðunum eru myndir sem starfsfólk Urban Decay tók á ferðalögum sínum. Allir litir augnskugganna voru einnig unnir út frá myndum starfsfólksins og að sögn merkisins er þessi palletta það eina sem þú þarft í ferðalagið. Pakkningin býr yfir stórum spegli, sem er sérlega hentugur í ferðalögum.

Vertu ófeimin að prófa þig áfram með liti en þessi …
Vertu ófeimin að prófa þig áfram með liti en þessi förðun sýnir hversu vel bronslitaðir og blágrænir tónar eiga vel saman.

Pallettan er hönnuð til að henta byrjendum í förðun sem og lengra komnum en ef þér finnst litaúrvalið yfirþyrmandi er gott að vita að hverjir þrír augnskuggar lóðrétt niður passa vel saman.

Endalaust er hægt að para saman liti í pallettunni til að skapa hlutlausa eða litsterka förðun. Myndirnar hér fyrir neðan kunna að veita innblástur að því hvernig nota má pallettuna.

Myndir úr ferðalögum starfsfólks Urban Decay veittu innblástur fyrir pallettuna. …
Myndir úr ferðalögum starfsfólks Urban Decay veittu innblástur fyrir pallettuna. Pallettan kostar 6.699 kr.
Hverjir þrír augnskuggar lóðrétt niður passa vel saman.
Hverjir þrír augnskuggar lóðrétt niður passa vel saman.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál