Katrín hertogaynja sneri aftur úr fæðingarorlofi þegar hún heimsótti náttúrulífsskóla í London. Kóngafólk er þekkt fyrir að vera miklir sparipinnar en Katrín var klædd fyrir tilefnið og mætti í gömlum stígvélum og jakka frá Fjällräven.
Katrín hefur átt stígvélin í meira en tíu ár en þau eru frá merkinu Penelope Chilvers. Gallabuxurnar eru einnig gamlar frá Zöru. Hertogaynjan var í nánast alveg eins dressi þegar hún heimsótti bóndabæ í maí í fyrra. Stígvélin og gallabuxurnar voru þau sömu.