Dan Clay vinnur fyrir banka í New York en í frítíma sínum klæðir hann sig upp sem Carrie Bradshaw úr Beðmálum í borginni. Clay sem kallar sig Carrie Dragshaw á Instagram nýtur vinsælda á samfélagsmiðlinum fyrir dragmyndatökur sínar.
Upphafið að uppátæki Clay hófst á hrekkjavökuhátíðinni árið 2016 eins og kemur fram í grein um Clay á vef Los Angeles Times. Clay var í fyrstu óöruggur með að viðurkenna ást sína á þáttunum þar sem hann hafði ekki opnað sig almennilega um kynhneigð sína.
Eins og sjá má á Instagram-síðu Clay er hann orðinn ansi fær í að líkja eftir Bradshaw og birtir hann oftast tvær myndir, eina af Söruh Jessicu Parker í hlutverki Bradshaw og aðra af sér í eins fötum og Parker.