Flottasti eða ljótasti hatturinn í dag?

Rihanna var flott í fötum með snákaskinnsmunstri.
Rihanna var flott í fötum með snákaskinnsmunstri. skjáskot/Instagram

Söngkonan Rihanna er alltaf með puttann á púlsinum þegar kemur að tísku eins og hún sannaði þegar hún fagnaði afmæli snyrtivörumerkis Fenty í Ástralíu en Fenty er hennar eigið merki. Rihanna var klædd í stuttan snákaskinnskjól og var í jakka og með hatt í stíl. 

Undanfarið hefur níundi áratugurinn sett svip sinn á tískuna og bar dress Rihönnu með snákaskinnsmunstrinu þess merki. Það er þó kannski bucket-hatturinn hennar sem fólk setur stærsta spurningarmerkið við. 

Bucket-hatturinn eða fötuhatturinn hefur átt erfiðara uppdráttar en litlu sólgleraugun en Rihanna má eiga það að hún gerði heiðarlega tilraun til þess að láta hattinn líta vel út. Á meðan einhverjir efast ekki um hversu flottur hatturinn hafi verið eru líklega jafnmargir sem myndu aldrei ganga með slíkan hatt. 

Er hatturinn málið?
Er hatturinn málið? skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál