Persónulegur stílisti eiginkonu sinnar

Justin Timberlake sér um að kaupa skó á Jessicu Biel.
Justin Timberlake sér um að kaupa skó á Jessicu Biel. AFP

Söngvaranum Justin Timberlake er margt til lista lagt en ásamt því syngja og dansa afspyrnu vel ráðleggur hann eiginkonu sinni, leikkonunni Jessicu Biel, þegar kemur að tísku. Í nýju viðtali við People viðurkennir hann að vera sérstakur stílisti eiginkonu sinnar. 

Timberlake segist oft fá Biel til þess að prófa nýju tískustrauma. „Þú ættir að eiga par af Jordan-strigaskóm af því bara,“ segist hann til dæmis segja við Biel. „Ég sé um mikið af skókaupum hennar, ég elska kvenmannsskó,“ viðurkenndi Timberlake. 

Justin Timberlake er annt um strigaskóna sína. Hann var í …
Justin Timberlake er annt um strigaskóna sína. Hann var í þessum strigaskóm í lok september. AFP

Söngvarinn sér kannski ekki um að velja kjólana á hana fyrir rauða dregilinn en hann segist þó passa að hann klæði sig í stíl við eiginkonu sína. Hann líkir klæðaburði við dans, hann sé þar til þess að styðja hana. 

Justin Timberlake klæðir sig í stíl við eiginkonu sína, Jessica …
Justin Timberlake klæðir sig í stíl við eiginkonu sína, Jessica Biel, á rauða dreglinum. AFP
Jessica Biel og Justin Timberlake.
Jessica Biel og Justin Timberlake. Frazer Harrison
Jessica Biel og Justin Timberlake.
Jessica Biel og Justin Timberlake. PASCAL LE SEGRETAIN
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál