Hvernig losnar þú við rafmagnað hár?

Baldur Rafn Gylfason.
Baldur Rafn Gylfason.

Á þessum árstíma upplifa margir að hárið verður rafmagnað. Það gerist vegna þess að loftið er þurrt og kalt á Íslandi. Þá hleðst upp stöðurafmagn, en hvað er til ráða?

„Það getur munað gríðarlega miklu hvaða vörur eru notaðar eftir árstíðum. Það er auðvelt að segja að nota eigi vörur sem gefa raka og það er rétt, en velja þarf fyrir hverja hártýpu líka rétt. Á hármarkaðnum er mikil þróun og til að mynda mikið af vörum sem heita „Anti-Frizz“ eitthvað, þær eru akkúrat hannaðar til að róa hárið án þess að þyngja það sem getur stundum gerst með vörum sem gefa bara raka,“ segir Baldur Rafn Gylfason eigandi bPro.

Anti-Frizz sjampó vinnur á móti upphleðslu stöðurafmagns í hárinu
Anti-Frizz sjampó vinnur á móti upphleðslu stöðurafmagns í hárinu

En hvað er til ráða?

„Góður hárbursti, einn fyrir blautt hárið og annar fyrir þurrt hárið.

Margar dömur nota rúllubursta, þeir þurfa að vera alvöru, fagmaður veit hvað það er.

Gott fyrir alla að eiga eitt stykki rakatæki heima.

Hártæki sem við notum flest eitthvað og sumir mikið eru gríðarlega mikilvæg í þessu máli. Í þeim viljum við hafa „Ionic“ tækni sem breytir jákvæðum

jónum í neikvæðar sem gerir það að verkum að hárið rafmagnast ekki eins mikið, þurrktíminn styttist og þú færð meiri glans,“ segir hann.

Góður rúllubursti með svínshárum gefur mikinn glans.
Góður rúllubursti með svínshárum gefur mikinn glans.
Hárblásari frá HH Simonsen býr yfir ionic-tækni sem skiptir máli …
Hárblásari frá HH Simonsen býr yfir ionic-tækni sem skiptir máli þegar rafmagnað hár er annars vegar.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál