Stal Katrín stílnum frá Meghan?

Katrín hertogaynja var stórglæsileg á opnun í Victoria og Albert-safninu …
Katrín hertogaynja var stórglæsileg á opnun í Victoria og Albert-safninu í London. AFP

Katrín hertogaynja var glerfín þegar hún mætti á opnun í Victoria og Albert-safninu í London á miðvikudagskvöldið. Kjóllinn sem hún klæddist þótti minna á kjól frá Carolinu Herrera sem svilkona hennar, Meghan hertogaynja, klæddist í júní en kjólarnir eru með svipuðu hálsmáli. 

Kjóll Katrínar var hins vegar frá Erdem en merkið er í miklu uppáhaldi hjá hertogaynjunni. Samkvæmt Hello kostar kjóllinn 1.395 pund eða um 160 þúsund íslenskar krónur. 

Meghan í bleikum kjól frá Carolinu Herrera.
Meghan í bleikum kjól frá Carolinu Herrera. AFP

Við kjólinn var Katrín í rauðum hælaskóm frá Jimmy Choo úr flaueli. Pössuðu skórnir afar vel við kjólinn og mittisborðann á kjól hertogaynjunnar. 

Katrín var afar fín í kjól frá Erdem.
Katrín var afar fín í kjól frá Erdem. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál