Mikil spenna ríkir fyrir konunglegum brúðarkjólum enda ekki að ástæðulausu eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan. Eugenie prinsessa af Jórvík verður annað barnabarn Elísabetar Englandsdrottningar til að gifta sig í ár þegar hún gengur að eiga unnasta sinn Jack Brooksbank á föstudaginn og verður spennandi að sjá hvernig kjól hún mun klæðast.
Flestir konunglegir brúðarkjólar eru frekar hefðbundnir en Camilla eiginkona Karls Bretaprins var í síðri blárri kápu yfir léttan kjól í aðeins ljósari blárri lit í brúðkaupi þeirra.
Camilla klæddist kjól frá Robinson Valentine þegar hún gekk að eiga Karl.
mbl.is/REUTERS
Charlene Wittstock var í fallegum hvítum kjól þegar hún gekk að eiga Albert fursta í Mónakó.
mbl.is
Mary var í stílhreinum brúðarkjól þegar hún gekk að eiga Friðrik krónprins.
mbl.is/JOHN MCCONNICO
Marie var í rómantískum brúðarkjól þegar hún gekk að eiga Jóakim Danaprins.
mbl.is
Phillipe kóngur í Belgíu og drottning hans Mathilde þegar þau giftu sig.
mbl.is/BENOIT DOPPAGNE
Norska prinsessan Martha Louise var í kápu yfir kjól sinn þegar hún gekk að eiga Ara Behn.
mbl.is/FABRIZIO BENSCH
Hákon krónprins og eiginkona hans Mette-Marit. Mette-Marit var í klassískum kjól í brúðkaupinu.
mbl.is/DAVE CAULKIN
Felipe Spánarkóngur og drottning hans Letizia voru flott þegar þau giftu sig.
mbl.is/POOL
Mikið var lagt í smáatriðin í brúðarkjól Katrínar þegar hún gekk að eiga Vilhjálm Bretaprins.
mbl.is/AFP
Brúðarkjóll Díönu prinsessu var stór og mikill.
Ljósmynd/RR Auction