Kremið sem stjörnurnar elska

Rihanna er mikið snyrtivörugúrú en henni finnst gott að nota …
Rihanna er mikið snyrtivörugúrú en henni finnst gott að nota kremið frá Weleda þegar hún fer í naglasnyrtingu. AFP

Ef það er eitthvað sem stjörnurnar gera þá er það að hugsa vel um útlitið. Rihanna, Adele, Victoria Beckham og Julia Roberts eru þekktar fyrir frísklega fegurð sína en þær eru allar sagðar nota sama krem sem heitir Skin Food og er frá Weleda.  

Samkvæmt InStyle notar leikkonan Julia Roberts meðal annars kremið á hendur sínar. „Ég set kremið á mig eftir að ég vaska upp og enda á því að setja það á olnboga og fætur. Áður en þú veist af ert þú búin að kreista og snúa upp á þessa aumingja litlu grænu túpu,“ sagði Roberts. 

Söngkonunni Rihönnu finnst meðal annars gott að nota kremið áður en hún lætur snyrta á sér neglurnar. Þá lætur hún bera það á hendur og fætur sína. 

Margar stjörnur nota því kremið á fæturna, á hendur og handleggi en svo eru dæmi um að förðunarfræðingar noti jafnvel kremið á andlit fólks. 

Kremið frá Weleda sem stjörnurnar elska.
Kremið frá Weleda sem stjörnurnar elska.
Julia Roberts.
Julia Roberts. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál