Snyrtivaran sem Meghan notar aldrei

Meghan málar sig sjálf og er einn varalitur sem hún …
Meghan málar sig sjálf og er einn varalitur sem hún forðast. AFP

Meghan hertogaynja sér oftast um að mála sig sjálf. Þessu greindi förðunarfræðingurinn Daniel Martin frá í viðtali við People í september. Martin sá um að farða Meghan á brúðkaupsdaginn hennar og er góður vinur hennar svo hann veit hvað hún vill og hvað hún vill ekki. 

Meghan skartar oftast náttúrulegri förðun og sést því yfirleitt með bleika og ljósa varaliti. Í rauninni er rauður varalitur snyrtivara sem Martin segir Meghan ekki nota.

„Eina skiptið sem hún var með rauðar varir leið henni ekki vel með hann. Henni finnst gaman að tala og er ekki smámunasöm manneskja svo hún vill ekki þurfa hafa áhyggjur af neinu,“ sagði Martin um það þegar Meghan prófaði rauðan varalit. 

Meghan hertogaynja.
Meghan hertogaynja. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál