Herratískan í vetur og næsta sumar er ótrúlega spennandi ef marka má samfélagsmiðla um þessar mundir.
Í vetur verða þykkar mjúkar peysur í lit áberandi. Litlir teinóttir frakkar og notaðar gallabuxur svo dæmi séu tekin. Stórar peysur og lag af mismunandi fötum er málið ef marka má GQ um þessar mundir.
Næsta sumar er svo mál til komið fyrir herrana að vera í stuttbuxum og strigaskóm. Robert Pattinson sýnir þetta útlit vel í Dior-fatnaði. Tvíhnepptur frakki, stuttar buxur, hvít bómullarskyrta og strigaskór eru flott samsetning.