Naomi Campbell stal senunni

Samstarf MOSCHINO og H&M var kynnt í gærkvöldi í New York með mikilli flugeldasýningu. Hin svokallaða ofurfyrirsæta Naomi Campbell átti sviðið í silfursamfestingi. 

H&M og Jeremy Scott, listrænn stjórnandi hjá MOSCHINO, buðu frægum stjörnum, áhrifavöldum og tískuritstjórum víða að úr heiminum að koma og berja sýnguna augum. Sjálfur sýningarpallurinn var svo skreyttur með ótal leiftrandi auglýsingaspjöldum í anda Times Square í New York.

„MOSCHINO & H&M-línan er gjöf frá mér til allra aðdáenda minna og með því vildi ég færa þeim MOSCHINO-legustu línuna frá upphafi. Ég reyndi því að hafa með alla lykilþættina sem má búast við að finna í sýningum frá mér – teiknimyndafígúrur í bland við götutísku, til að laða fram útlit sem gæti ekki verið neitt annað en MOSCHINO,“ segir Jeremy Scott, listrænn stjórnandi hjá MOSCHINO.

„Það var svo gaman að hrífast með Jeremy inn í MOSCHINO-heiminn á MOSCHINO & H&M-sýningunni. Sýningin einkenndist af jákvæðni, húmor og gleðinni sem einkennir hverja flík og hvern fylgihlut í þessari línu,“ segir Ann-Sofie Johansson, listrænn stjórnandi hjá H&M.

Förðunin á MOSCHINO & H&M-sýningunni var í höndum eins þekktasta förðunarmeistara heims, Pat McGrath, sem notaði að sjálfsögðu vörur frá H&M Beauty. Förðunin var í stíl við línuna sjálfa en hún einkenndist af sterkri augnförðun og glamúr, með áherslu á skarpar línur og ljómandi húð.

Um leið og Jeremy steig á svið í lok sýningarinnar til að hneigja sig lyftust auglýsingaspjöldin utan um pallinn upp og plötusnúðurinn, framleiðandinn og Grammy-verðlaunahafinn Diplo kom í ljós á plötusnúðabásnum. Og þá hófst partíið! Sérstök MOSCHINO & H&M-„pop-up“-verslun kom einnig í ljós og þar gátu gestirnir fengið fyrstir allra færi á að kaupa vörur úr línunni.

Allt kvöldið og fram á nótt var gestunum leyft að bókstaflega ganga inn í heillandi heim MOSCHINO & H&M og njóta þar tískuupplifunar í auknum veruleika í fyrsta sinn í sögunni. Gestirnir settu upp Magic Leap One-höfuðtól, með einkennismerkinu H&MOSCHINO, og stigu inn í risavaxinn sjónvarpsskjá þar sem var hægt að upplifa tískulínuna á alveg nýjan hátt. Allar tæknilausnir hannaði Warpin Media.

MOSCHINO & H&M er tískulína þar sem orka götumenningarinnar mætir poppmenningu, glamúr, gáska og húmor. Jeremy Scott, listrænn stjórnandi hjá MOSCHINO, hefur hannað línu fyrir dömur og herra, ásamt fjölda fylgihluta og nokkrum sérhönnuðum vörum fyrir hunda. MOSCHINO & H&M verður fáanleg í völdum verslunum H&M um allan heim, þar á meðal í H&M í Smáralind, frá og með 8. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál