Pils Meghan var gegnsætt

Harry og Meghan virtust ekki kippa sér upp við gegnsætt …
Harry og Meghan virtust ekki kippa sér upp við gegnsætt pilsið. AFP

Meghan og Harry hafa nú lokið ferðalagi sínu um Eyjaálfu. Meghan þótti sérstaklega vel til fara en það kom þó fyrir að klæðnaður hennar vakti athygli fyrir eitthvað allt annað. Í gær var það blátt pils frá Givenchy sem vakti mikla athygli fyrir að vera gegnsætt.

Plíserað pilsið var gegnsætt og sást vel í nærfatnað hertogaynjunnar og bera leggi hennar. Ekki er vitað hvort Meghan hafi verið meðvituð um hversu gegnsætt pilsið var og þá hvort nærbuxurnar hafi fylgt pilsinu.

Hertogaynjan virðist sérstaklega hrifin af franska merkinu og hefur hún ekki bara klæðst því við hin ýmsu tækifæri eftir að hún gekk formlega í bresku konungsfjölskylduna í maí heldur var brúðarkjóll hennar einnig frá merkinu. 

View this post on Instagram

Absolutely love love love love this Blue Givenchy skirt👗🤩 #meghanmarkle 👸 #duchess #of #sussex 🇺🇸 🇬🇧

A post shared by Tracey Barnes (@tigrrlgirl) on Nov 1, 2018 at 1:50am PDT



Meghan í gegnsæja pilsinu.
Meghan í gegnsæja pilsinu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál