Allt um brúðkaupið

Brad Falchuck og Gwyneth Paltrow hamingjusöm á brúðkaupsdaginn.
Brad Falchuck og Gwyneth Paltrow hamingjusöm á brúðkaupsdaginn. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Gwyneth Paltrow deilir með lesendum sínum á GOOP hverju einasta atriði tengt brúðkaupi sínu í haust. Paltrow sem var að gifta sig í annað sinn, klæddist hvítum kjól og bjó til ævintýralegt kvöld fyrir vini og fjölskylduna. 

Brúðkaupið var haldið í Hamptons, New York, 29. september. Hún og eiginmaður hennar Brad Falchuck tóku á móti 70 gestum. Veislan var haldin úti, í stóru hvítu tjaldi sem var skreytt eins og ævintýrahöll. Skreytingar á borðum voru íburðarmiklar, en öll umgjörð brúðkaupsins var einföld. 

Matreiðslumaðurinn Mario Carbone þykir sá allra besti í heimi. Carbone eldaði fyrir Paltrow og Falchuck á fyrsta stefnumóti þeirra. Hann sá um allan mat í veislunni. 

Lifandi tónlist, rómantísk lýsing og góður félagsskapur var þema kvöldsins. Brúðurin skipti um fatnað í miðri veislunni og tók þátt í gleðinni fram að nótt með brúðguma sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál