Sagðist ekki passa í kjóla frá Beckham

Meghan klæðist ekki hverju sem er.
Meghan klæðist ekki hverju sem er. AFP

Á dögunum rifjuðu erlendir miðlar upp viðtal við Meghan hertogaynju frá því að hún lék í Suits þar sem hún útskýrði af hverju hún gengi ekki í kjólum frá Victoriu Beckham. Meghan segir sniðin ekki fara sér og var hún nokkuð fljót að telja upp galla sína eins og fólk gerir oft. 

„Það sem ég er byrjuð að læra er að jafnvel þótt föt líti frábærlega út á herðatrénu þýðir það ekki að þau líti frábærlega út á mér,“ sagði Meghan sem sagði að sér þætti búkur sinn vera of stuttur fyrir snið Beckham sem mætti seinna í brúðkaup hennar og Harrys í maí. 

Meghan segist vera með stuttan búk.
Meghan segist vera með stuttan búk. AFP

Hún er greinilega mjög meðvituð um líkama sinn þar sem hún sagðist einnig vera með mjög langa fætur þrátt fyrir að vera ekki hávaxin. Eitthvað sem vegur á móti stutta búknum væntanlega? Hún þyrfti því að fara varlega þegar hún klæddist stuttum pilsum. 

Meghan sem klæddist mikið af þröngum fötum í lögfræðiþáttunum sagði að dagsdaglega þætti henni betra að vera í einhverju sem hún gæti andað í. Víðari kjólar, jafnvel síðir kjólar, flatbotna skór og stuttur jakki er eitthvað sem Meghan sagðist klæðast á venjulegum degi.

Victoria og David Beckham í brúðkaupi Harry og Meghan.
Victoria og David Beckham í brúðkaupi Harry og Meghan. AFP


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál