Svona lítur náttúrulegt hár Obama út

Michelle Obama er ekki með svona slétt hár frá náttúrunnar …
Michelle Obama er ekki með svona slétt hár frá náttúrunnar hendi. AFP

Michelle Obama, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, er þekkt fyrir vel blásið hár sitt. Er hár hennar vanalega slétt með smá bylgjum í. Hún hefur einnig skartað alveg sléttu hári en aldrei sýnt sínar náttúrulegu krullur fyrr en nú. 

Prýðir Obama forsíðu desember útgáfu tímaritsins Essence  og birtust myndir úr myndatöku fyrir tímaritið í vikunni. Er hár forsetafrúarinnar glæsilegt og finnst mörgum óskiljanlegt af hverju hún hefur falið sitt náttúrulega hár þar til þessa. 

 Í fyrra vakti náttúrulegt hár Obama athygli en þá var mynd tekin af henni með náttúrulegt hárið í tagli í fríi. Samkvæmt Allure sýndi hún aldrei sitt náttúrulega hár á meðan eiginmaður hennar var forseti. 




Sem forsetafrú var hún stundum með hárið alveg slétt.
Sem forsetafrú var hún stundum með hárið alveg slétt. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál