Brúðarkjóllinn var bleikur

Mandy Moore giftist Taylor Goldsmith í bleikum kjól.
Mandy Moore giftist Taylor Goldsmith í bleikum kjól. skjáskot/Instagram

Leikkonan Mandy Moore og unnusti hennar Taylor Goldsmith gengu í það heilaga um síðustu helgi. Ólíkt flestum brúðarkjólum var brúðarkjóll This Is Us-stjörnunnar bleikur eins og sést á myndum sem Moore birti á Instagram. 

Var Moore að gifta sig í annað sinn en fyrir nokkrum áratugum hefði ekki þótt annað við hæfi en að gifta sig í bleiku. Nú er öldin önnur en þrátt fyrir það valdi Moore að gifta sig í bleikum kjól. 

Snið kjólsins var heldur ekki í anda hefðbundna brúðarkjóla þó svo það passaði fullkomlega við tækifærið. Harper's Bazaar greinir frá því að kjóllinn sé frá bandaríska merkinu Rodarte og var sniðið upphafleg hluti af næstu vorlínu, litum hafi aðeins verið breytt.  

Kannski konur fari að velja bleika brúðarkjóla í auknum mæli á næsta ári. 

View this post on Instagram

A post shared by Mandy Moore (@mandymooremm) on Nov 20, 2018 at 2:40pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál