Spánardrottning í ódýrum kjól af Asos

Peng Liyuan, forsetafrú Kína, og Letizia Spánardrottning sem sést hér …
Peng Liyuan, forsetafrú Kína, og Letizia Spánardrottning sem sést hér í kjólnum frá Asos. AFP

Kóngafólk er þekkt fyrir að klæðast rándýrum merkjavörum, sérstaklega á opinberum vetvangi. Hin smekklega drottning Spánar, Letizia drottning, var hins vegar ekki að flækja málin þegar hún og eiginmaður hennar tóku á móti forsetahjónum Kína í Madríd í vikunni og klæddist kjól frá ASOS. 

Kjóllinn sem Letizia klæddist er frá merki netverslunarinnar ASOS og kostar ekki nema 119 dollara eða tæpar 15 þúsund krónur sem er ekki mikið á mælikvarða kóngafólks. 

Kjóllinn rauk auðvitað út þegar drottningin birtist í kjólnum og er uppseldur í nær öllum stærðum þegar þetta er skrifað. 

Spánardrottning klæddist bleikri kápu yfir kjólinn utandyra.
Spánardrottning klæddist bleikri kápu yfir kjólinn utandyra. AFP
Kjóllinn sem Letizia drottning klæddist var frá Asos.
Kjóllinn sem Letizia drottning klæddist var frá Asos. skjáskot/Asos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál