Fegurðarleyndarmál Nicole Kidman

Nicole Kidman hugsar vel um húðina.
Nicole Kidman hugsar vel um húðina. AFP

Nicole Kidman geislar þessa vikurnar á rauða dreglinum. Leyndarmál hinnar 51 árs gömlu leikkonu virðist ekki vera lýtaaðgerðir eins og einhver hefði haldið en í viðtali við Harper's Bazaar segist hún passa upp á að þrífa allan farða og bera á sig sólarvörn. 

„Mér var kennt að þrífa allan farða af mér á hverju kvöldi en ef ég er búin að vera vinna allan daginn nota ég hreinsiklúta til þess að gera það hratt og auðveldlega,“ segir Kidman og bætir við að klútarnir séu sérstaklega góðir á ferðalögum þar sem þeir komast í gegnum öryggisleit á flugvöllum. 

Kidman hefur notað sólarvörn frá því að hún var barn og segist bera sólarvörn á andlit sitt á hverjum degi. Á hún þá við sólarvörn sem á að veita hæstu vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar. Sólarvörnin kemur í veg fyrir hrukkur að einhverju leyti en Kidman notar líka hrukkukrem á nóttinni. 

Leikkonan nennir ekki að eyða of miklum tíma á snyrtistofu en lætur lita augabrúnir sínar og rótina. Hún er með löng augnhár en bein svo hún segist þurfa að bretta upp á þau. „Það er alltaf varagloss í töskunni minni. Ef ég set smá gloss og bretti augnhárin á morgnana lít ég vel út (eða nógu vel til þess að skutla í skólann),“ segir Kidman. 

Nicole Kidman.
Nicole Kidman. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál