Vinnan við kjólinn tók 1.825 klukkutíma

Nick Jonas og Priyanka Chopra gengu í hjónaband um helgina.
Nick Jonas og Priyanka Chopra gengu í hjónaband um helgina. AFP PHOTO / RAINDROP MEDIA

Bollywood og Hollywood-stjörnurnar Priyanka Chopra og Nick Jonas gengu í það heilaga um síðustu helgi að kristnum og hindúasið. Einn brúðarkjóll gekk því ekki fyrir Chopra sem klæddist hefðbundnum hvítum kjól í athöfn að kristnum hætti og voru hin fötin undir indverskum áhrifum, gullfallegt rautt pils og toppur við.  

Hello og People fengu einkarétt á myndum hjónanna og greindi Chopra frá því í viðtali við Hello að Ralph Lauren hefði hannað hvíta brúðarkjólinn. Áður en hann hannaði kjól indversku leikkonunnar hafði hann aðeins hannað þrjá brúðarkjóla, á dóttur sína, tengdadóttur og frænku.

Hvíti kjóllinn var skreyttur Swarovski-kristölum og tók 1.826 klukkutíma að klára kjólinn sem fylgdi 75 metra langt slör. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál