Glóðu eins og demantur um jólin

Jólaförðunin í ár er falleg.
Jólaförðunin í ár er falleg.

Náttúruleg, bronsuð förðun með áherslu á fallega og ljómandi húð sem hentar fullkomlega fyrir öll jólaboð í ár. Natalie Kristín Hamzehpour förðunarmeistari gefur góð ráð. 

„Það besta við þessa förðun er að hún er mjög auðveld og fljótleg og hægt að breyta henni töluvert með því að skipta út nude-varalit fyrir rauðan,“ segir Natalie.

Grunnaðu húðina með Clarins SOS primer í litnum 01 til …
Grunnaðu húðina með Clarins SOS primer í litnum 01 til að gefa húðinni jafna áferð og fallegan ljóma. Þetta skref tryggir að farðinn endist allt kvöldið á þess að þú þurfir að laga þig.
Notaðu léttan farða eins og Aqua Nude frá Guerlain. Þú …
Notaðu léttan farða eins og Aqua Nude frá Guerlain. Þú getur borið hann á með puttunum.
Augnförðunin er mjög einföld en aðeins tveir augnskuggar eru notaðir …
Augnförðunin er mjög einföld en aðeins tveir augnskuggar eru notaðir hér, einn fallegur kampavínslitur yfir allt augnlokið og mjúkur hlýr brúnn litur er borinn undir augnbein til að ramma inn augun. Sami brúni litur er borinn á undir augun meðfram augnhárunum. Hér er Electric Look-augnskuggapallettan frá Guerlain.
Notaðu svartan gel-eyeliner eins og Clarins Waterproof eyeliner til að …
Notaðu svartan gel-eyeliner eins og Clarins Waterproof eyeliner til að draga línu meðfram augnhárunum og endaðu eyelinerinn í spíss. Prófaðu líka að nudda yfir eyelinerinn með litlum bursta af dökkum augnskugga til að mýkja línuna.
Notaðu nóg af maskara sem gefur mikla fyllingu eing og …
Notaðu nóg af maskara sem gefur mikla fyllingu eing og Chanel Le Volume og svo má bæta við nokkrum gerviaugnhárum til að fá ennþá meiri fyllingu.
Terracotta Light frá Guerlain er boið á kinnar og kemur …
Terracotta Light frá Guerlain er boið á kinnar og kemur í staðinn fyrir sólarpúður og kinnalit. Notaðu örlítiið af kampavínslitaða augnskugganum úr Elecric Look-pallettunni frá Guerlain efst á kinnbein til að bæta ljóma í húðina og lyfta kinnbeinunum.
Kláraðu förðunina með fallegum varalit með léttri sanseringu en Guerlain …
Kláraðu förðunina með fallegum varalit með léttri sanseringu en Guerlain Rouge G varalitnum í litnum 92 er mjög fallegur. Hægt er að leika sér með förðunina með því að breyta um varaliti. Rauður litur kæmi líka vel út við þessa förðun.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál