Meghan glerfín í jólakjól

Meghan gæti klæðst þessum kjól í boði drottningar um jólin.
Meghan gæti klæðst þessum kjól í boði drottningar um jólin. AFP

Meghan hertogaynja var glerfín þegar hún heimsótti elliheimili í gær, þriðjudag. Var hún berleggja í hvítum kjól. Kjóllinn sem er ekki sérstaklega hannaður fyrir óléttar konur sýndi óléttukúlu Meghan mjög vel en kúlan er orðin ansi myndarleg. 

Hvíti kjóllinn er frá bandaríska lúxusmerkinu Brock Collection og kostar 1.480 dollara eða um 180 þúsund krónur. Kjóllinn er úr fatalínu fyrir árið 2019 og Meghan því einu skrefi á undan flestum sem enn eru í fötum frá árinu 2018. 

Hálsmálið, rykktar ermarnar og mynstrið gerir kjólinn afar hátíðlegan og myndi Elísabet Bretadrottning líklega ekki setja út á það ef Meghan klæddist kjólnum í boði hennar á jóladag. 

Meghan hertogaynja.
Meghan hertogaynja. AFP
Kjóllinn sýndi bert bak Meghan vel.
Kjóllinn sýndi bert bak Meghan vel. AFP
Meghan klæddist kjól frá Brock Collection þegar hún heimsótti elliheimili.
Meghan klæddist kjól frá Brock Collection þegar hún heimsótti elliheimili. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál