Mætti með tæplega 600 milljóna hálsmen

Lady Gaga með rándýra hálsmenið.
Lady Gaga með rándýra hálsmenið. AFP

Lady Gaga vakti ekki bara athygli fyrir að klæðast stórum og miklum kjól á Golden Globe-hátíðinni. Hálsmenið sem hún bar var ennig mjög stórt og fyrirferðamikið, um var að ræða demanta frá Tiffanys. 

Á vef InStyle kemur fram að hálsmenið heiti Tiffany Aurora og magn dýrmætra steina á því sé stjarnfræðilegt. Demantanir á hálsmeninu eru sagðir yfir 60 karöt en dropinn sem setur punktinn yfir i-ið er 20 karöt. Samtals eru rúmlega 300 demantar á hálsmeninu. 

Sama hversu mikla peninga fólk á er ekki hægt að labba inn í Tiffany & Co. og kaupa hálsmen eins og þetta. Yfirgimsteinafræðingur fyrirtækisins segir í greininni að hálsmenið hafi verið sérstaklega búið til fyrir stjörnuna.  

Þrátt fyrir að það sé ekki hægt að setja verðmiða á hálsmenið kemur fram á vef The Hollywood Reporter að virði þess sé fimm milljónir Bandaríkjadala eða rúmlega 592 milljónir íslenskra króna. 

Auk hálsmensins var hún með eyrnalokka sem metnir kosta 115 þúsund Bandaríkjadali eða 13,6 milljónir íslenskra króna og armbönd í stíl. Hringurinn sem hún bar var trúlofunarhringur hennar. 

Lady Gaga.
Lady Gaga. AFP
Lady Gaga með Golden Globe-verðlaunin sín og hálsmenið.
Lady Gaga með Golden Globe-verðlaunin sín og hálsmenið. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál