Úr Glamour yfir á Hönnunarmiðstöð

Álfrún Pálsdóttir kynningarstjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Álfrún Pálsdóttir kynningarstjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands. Ljósmynd/Baldur Kristjánsson

Fyrrverandi ritstjóri Glamour, Álfrún Pálsdóttir, er nýráðin sem kynningarstjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands. 

Álfrún hefur starfað á fjölmiðlum í meira en áratug en hún er menntuð í fjölmiðla- og kynjafræði frá Háskólanum í Osló. Áður en hún varð ritstjóri Glamour var hún ritstjórnarfulltrúi á Fréttablaðinu. 

„Hún mun halda utan um, móta og bera ábyrgð á kynningarmálum Hönnunarmiðstöðvar og þeim verkefnum sem miðstöðin sinnir, auk þess að veita samfélagi hönnuða og arkitekta þjónustu á sviði kynningarmála. Álfrún hóf störf 4. janúar og bjóðum við hana velkomna til starfa,“ segir í fréttatilkynningu frá Hönnunarmiðstöð Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál