Taktu veturinn með stæl eins og Soliani

Brúnkukrem frá Marc Inbane bjargjar fólki á þessum árstíma.
Brúnkukrem frá Marc Inbane bjargjar fólki á þessum árstíma.


Kærasta Rúriks Gíslasonar, Nathalia Soliani, sem er brasilísk ofurfyrirsæta, heimsótti sinn heittelska til Evrópu í nýliðinni viku og naut parið lífsins í Ölpunum. Hún var eins og klippt út úr tískublaði.

Það sem vakti athygli var hvað Soliani var lekker í vetrardressinu, stórri úlpu frá 66°Norður, þröngum svörtum buxum, primaloft-úlpu undir og með slegið hár og sólgleraugu. Alveg hreint eins og drottning til fara.

Fólk sem ekki elskar veturinn jafnheitt og brasilíska fyrirsætan bölvar því að það sé ekki hægt að vera almennilega klæddur í þessari færð en það er náttúrlega bara vitleysa. Þú tekur þig til eins og vanalega, setur Volume Mousse frá label.m í rótina frá label.m og blæst á þér hárið. Volume Mousse lyftir rótinni og mótar hárið betur. Ef hárið er vel blásið og með fallegri lyftingu þá er svo auðvelt að vinna með restina.

Í snjó og kulda minnkar rakastig húðarinnar og því skiptir máli að sofa með góðan rakamaska og bera á sig feitt og gott krem. Til dæmis Skin Food frá Weleda. Það nærir húðina og gefur henni annað yfirbragð. Þegar húðin er vel nærð er miklu fallegri áferð á húðinni sjálfri þegar við setjum á okkur farða. Þegar farðinn er kominn á er sniðugt að setja brúkuúða frá Marc Inbane yfir andlitið til að fá örlítinn ljóma. Með þessum trixum lítum við út fyrir að vera náttúrulegar nánast ómálaðar en glóum eins og demantur um leið. Það er nú aldeilis eftirsóknarvert ástand.

Þegar hárið og andlitið er klárt skiptir máli að eiga hlýja og móðins yfirhöfn. Með réttri úlpu komumst við upp með að vera í hefðbundnum skrifstofufötum við og svo felst mikið frelsi í því að vera í gönguskóm eða í gúmmístígvélum með hæl. Þá liggja fínu skórnir ekki undir skemmdum á meðan heldur geta bara hvílt sig heima meðan mesti snjórinn mokast yfir landið.

Nathalia Soliani ofurfyrirsæta frá Brasilíu og kærasta Rúriks Gíslasonar.
Nathalia Soliani ofurfyrirsæta frá Brasilíu og kærasta Rúriks Gíslasonar.
Hanskar frá Gucci.
Hanskar frá Gucci.
Parajumpers-úlpurnar fást í Kultur.
Parajumpers-úlpurnar fást í Kultur.
Hunter-stígvél fást í Geysi og Kultur.
Hunter-stígvél fást í Geysi og Kultur.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál