This Is Us-stjarna stal senunni

Susan Kelechi Watson var í stórkostlegum gulum kjól.
Susan Kelechi Watson var í stórkostlegum gulum kjól. AFP

Leikkonan Susan Kelechi Watson geislaði eins og sólin í fagurgulum kjól á Screen Actors Guild-verðlaunahátíðinni í gærkvöldi. Hún fer með eitt af aðalhlutverkunum í þáttunum This Is Us sem unnu verðlaun í flokki drama-þátta. 

Susan Kelechi Watson skar sig úr.
Susan Kelechi Watson skar sig úr. AFP

Það voru þó fleiri sem voru eftirtektarverðir í gærkvöldi, en þær Lily Tomlin og Jane Fonda komu einstaklega fyrir. Þær eru engir nýgræðingar í sjónvarpsþáttaheiminum en þær fara nú með aðahlutverkið í Netflix-seríunni Grace & Frankie sem hafa notið mikilla vinsælda. Tomlin verður áttræð á árinu en Fonda fagnaði 81 árs afmæli í fyrra.

Lily Tomlin og Jane Fonda voru flottar.
Lily Tomlin og Jane Fonda voru flottar. AFP
Emma Stone var glæsileg í buxum og gylltri pallíettublússu.
Emma Stone var glæsileg í buxum og gylltri pallíettublússu. AFP
Patricia Clarkson var flott í gylltum kjól.
Patricia Clarkson var flott í gylltum kjól. AFP
Mandy Moore klæddist fallegum svörtum kjól með silfurborða. Þættir hennar …
Mandy Moore klæddist fallegum svörtum kjól með silfurborða. Þættir hennar This Is Us unnu til verðlauna á hátíðinni. AFP
Glenn Close var virðuleg í hvítri buxnadragt en hún fór …
Glenn Close var virðuleg í hvítri buxnadragt en hún fór heim með verðlaun í flokki bestu leikkonu í aðalhlutverki. AFP
Emily Blunt klæddist æpandi bleikum kjól. Hún fór heim með …
Emily Blunt klæddist æpandi bleikum kjól. Hún fór heim með verðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni A Quiet Place. AFP
Sandra Oh klæddist rauðum glimmerkjól.
Sandra Oh klæddist rauðum glimmerkjól. AFP
Lady Gaga var guðdómleg í hvítum kjól og með dökkan …
Lady Gaga var guðdómleg í hvítum kjól og með dökkan varalit. AFP
Ellen Wong klæddist pallíettum frá toppi til táar.
Ellen Wong klæddist pallíettum frá toppi til táar. AFP
Renee Bargh klæddist einnig pallíettum frá toppi til táar.
Renee Bargh klæddist einnig pallíettum frá toppi til táar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál