Justin Bieber hannar fatalínu

Justin Bieber hannar nú föt.
Justin Bieber hannar nú föt. AFP

Kanadíski tónlistarmaðurinn, og nú fatahönnuðurinn, Justin Bieber hefur ekki setið auðum höndum síðustu mánuði þrátt fyrir að svífa um á bleiku skýi með eiginkonu sinni Hailey Bieber. Hann gaf nýverið út sína eigin fatalínu. 

Bieber er hrifinn af ljósbrúnum lit og brosköllum.
Bieber er hrifinn af ljósbrúnum lit og brosköllum. skjáskot/Instagram

Ljósbrúnir tónar og broskallar eru áberandi í fatalínunni, en hann hannar fötin undir merkinu The House of Drew, en Drew er millinafn hans. 

Fötunum svipar nokkuð til fatalínu rapparans Kanye West, Yeezy Season 3. Buxurnar og jakkarnir í línunni eru í þessum ljósbrúna lit sem West virðist einnig vera hrifinn af. Sniðin eru einnig heldur víð, en línan er hönnuð fyrir öll kyn. 

Aðdáendur Bieber eru heldur betur heppnir, en The House of Drew sendir til Íslands og geta hérlendir því pantað sér föt hönnuð af átrúnaðargoðinu.

View this post on Instagram

c u tomorrow...

A post shared by Drew House (@drewhouse) on Jan 28, 2019 at 5:07pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál