Svona klæðir Meghan sig í snjónum

Það snjóaði á Meghan í Bristol.
Það snjóaði á Meghan í Bristol. AFP

Hertogahjónin af Sussex heimsóttu í Bristol í dag, föstudag, en það kyngdi niður snjó í borginni. Verðandi foreldrarnir létu það ekki snjóinn á sig fá og skildu gögnuskóna og dúnúlpurnar eftir í höllinni. Hjónin vissu þó vel af snjónum þar sem þau hættu við að fljúga vegna veðurs og tóku lest í staðinn. 

Hjónin voru bæði í ullaryfirhöfnum svo þau voru þokkalega vel búin.

Meghan var í svartri þykkri ullarkápu frá William Vintage en undir henni var hún í kjól frá Oscar de la Renta. Silkikjóllinn með dýramynstrinu er fáanlegur á vefversluninni Net-a-Porter fyrir 1.400 pund eða um 220 þúsund íslenskar krónur. 

Meghan virðist óhrædd við hálkuna og klæddist hún töffarlegum grænum hælastígvélum frá Söruh Flint. Stígvélin sem voru úr rússkinni settu punktinn yfir i-ið. 

Meghan var í flottum grænum rússkinnsstígvélum.
Meghan var í flottum grænum rússkinnsstígvélum. AFP
Meghan og Harry.
Meghan og Harry. AFP
Meghan og Harry voru í ullaryfirhöfnum.
Meghan og Harry voru í ullaryfirhöfnum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál