Snyrtivöruleyndarmál Ocasio-Cortez

Alexandria Ocasio-Cortez hefur mikinn áhuga á snyrtivörum.
Alexandria Ocasio-Cortez hefur mikinn áhuga á snyrtivörum. AFP

Alexandria Ocasio-Cortez, yngsta konan til að sitja í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, er ekki bara gáfuð og grjóthörð stjórnmálakona. Hún er mikil áhugakona um vísindi, og þá sérstaklega vísindin á bak við snyrtivörur. Á dögunum deildi hún hvaða snyrtivörur hún notar dags daglega á Instagram

Hún byrjaði að ræða um snyrtivörur eftir að hún fékk spurningu um hvernig hún forðaðist stress og hvernig hún héldi húðinni svona góðri. Hún svaraði að það væri mikið stress í lífi hennar, enda þingkona í Bandaríkjunum. 

Hennar helstu ráð voru að nota ekki farða með fullri þekju. Sjálf notar hún helst lituð dagkrem eða BB-krem. Hún gaf einnig það ráð að sofa ekki með farða. 

Ocasio-Cortez notar sólarvörn á hverjum degi.
Ocasio-Cortez notar sólarvörn á hverjum degi. AFP

Hún þrífur andlit sitt tvisvar eftir að hafa verið máluð, fyrst tekur hún farðann af og síðan djúphreinsar hún húðina. Eftir djúphreinsunina notar hún nærandi tóner og því næst notar hún serum með C-vítamíni eða retinol. Þegar serumið er farið inn í húðina setur hún svo á sig rakakrem. Hún segist einnig nota sólarvörn á hverjum degi til að vernda húðina. 

Síðast en ekki síst segir Ocasio-Cortez að mataræðið skipti einnig máli. Hún fékk mikið af útbrotum þegar hún var yngri og prófaði að taka út mjólkurvörur sem svínvirkaði. Hún segist þó eiga erfitt með að sleppa mjólkurvörum alveg, en reynir að borða minna af þeim. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál