Hver er best klædda kona Íslands?

Reglulega hefur Smartland valið best klæddu konur Íslands. Í Tískublaði Morgunblaðsins sem kemur út á næstunni verður listinn kynntur. 

Hvað einkennir best klæddu konur Íslands? Eyða þær öllum peningunum sínum í föt eða búa þær yfir þeirri náðargáfu að geta gert mikið úr litlu? Sannleikurinn er yfirleitt sá að peningar geta ekki keypt stíl og allt það. Svo er smekkur fólks misjafn. Það sem einum finnst ógurlega lekkert finnst öðrum hræðilegt og svo má ekki gleyma því að kynin hafa mjög ólíka sýn á hvað er smekklegur klæðnaður og hvað ekki. 

Þess vegna leitum við til ykkar til þess að listinn verði upp á 10! Það sem þú þarft að gera er að senda skilaboð á Smartland á Instagram eða á netfangið smartland@mbl.is. Nóg er að tilgreina eina konu en þær mega vera fleiri ef ykkur liggur mikið á hjarta. Ekki væri verra að fá eins og eina setningu um ykkar fulltrúa. 

Markmiðið er að hafa listann eins fjölbreyttan og hægt er. Þess vegna þurfum við á þér að halda í verkefnið. 

View this post on Instagram

Segðu þína skoðun! #bestklæddakonan

A post shared by Smartland (@smartlandmortumariu) on Feb 7, 2019 at 8:20am PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál